MARC INBANE Ilmkerti – Scandy Chic Svart
kr.5.700
MARC INBANE BOUGIE PARFUMÉE eru hágæða handgerð ilmkerti í munnblásnum glerglösum. Kertin eru framleidd eftir klassískum aðferðum og hellt í mörgum lögum til að vaxið og ilmurinn blandist fullkomlega út allan brunatímann. Kveikarnir eru sérvaldir til að eiga við hvern ilm og brenna kertin í 50 klst.
Ilmkertin eru falleg gjöf við hvaða tilefni sem er handa þér eða þeim sem þér þykir vænt um og langar að dekra við. Kerti með ljúfum ilm lífga upp á öll heimili og eru því fullkomin tækifærisgjöf.
Scandy Chic ilmurinn einkennist af blómum með viðar, vanillu og musku undirtónum. Djúpur og hlýr ilmur.
BOUGIE PARFUMÉE ilmkertin eru fáanleg í fjórum ilmum og hver ilmur er fáanlegur í hvítu eða svörtu glasi.
Pastèque Ananas
Tabac Cuir
Scandy Chic
Oriental Boisé
Ekki til á lager